13.1.2009 | 09:38
Sólskinsdrengurinn vinsælasta myndin á Íslandi
ÞAÐ er ánægjulegt frá að segja að Sólskindrengurinn trónir á toppi bíólistans eftir aðra helgi ársins 2009. Myndin var frumsýnd á föstudaginn við fullt hús og sáu rúmlega 3.500 manns hana um helgina.
Athugasemdir
Ágætu aðstandendur myndarinnar um Sólskinsdrenginn.
Við starfsmenn Hlíðaskóla í Reykjavík höfum mikið talað um myndina og hefðum því áhuga á að fara saman og sjá myndina. En þar sem hluti af starfsfólki okkar er heyrnarskert/laust þá er einungis mögulegt fyrir þá að skilja hluta myndarinnar, þegar textað er fyrir ensku.
Fyrir ári síðan var ég stödd á málþingi Heyrnarhjálpar, þar sem Agnes Johansen hét því, fyrir hönd framleiðenda kvikmynda á Íslandi, að gera hvað í hennar valdi stæði til að auka textun við íslenskar myndir.
Texti á íslensku myndi gjörbreyta aðgengi okkar að myndinni.
Kveðja,
Bryndís Helgadóttir
starfsmannafélag Hlíðaskóla.
Bryndís Helgadóttir (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 11:39
Til hamingju með frábæran árangur
Ómar Ingi, 13.1.2009 kl. 11:50
Frábært.... enn meiri ástæða til að koma með myndina norður til Akureyrar :=)
Sifjan, 13.1.2009 kl. 20:30
Sá myndina á sunnudaginn og vil bara þakka fyrir mig um leið og ég óska ykkur til hamingju!!! Myndin gaf mér heilmikið, lét mig ferðast fram og til baka í eigin lífi en mest af öllu gaf hún mér trúnna á 14 ára drenginn minn.
Kristín Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 12:30
Vona að myndin komi norður fyrir heiðar.
Guðrún Una Jónsdóttir, 14.1.2009 kl. 18:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.